25október

Love Is Blind

 

Eve -Love is Blind

hey, yo I don't even know you and I hate you
see all I know is that my girlfriend used to date you
how would you feel if she held you down and raped you
tried and tried but she never could escape you
she was in love and I'd ask her how? I mean why?
What kind of love from a nigga would black your eye?
What kind of love from a nigga every night make you cry?
What kind of love from a nigga make you wish he would die?
I mean shit he bought you things and gave you diamond rings
but them things wasn't worth none of the pain that he brings
And you stayed, what made you fall for him
that nigga had the power to make you crawl for him
I thought you was a doctor be on call for him
smacked you down cause he said you was to tall for him, huh?
that wasn't love babygirl you was dreamin'
I could have killed you when you said your seed was growin' from his semen
(Repeat twice)
Love is blind, and it will take over your mind
What you think is love, is truly not
You need to elavate and find

I don't even know you and I'd kill you myself
you played with her like a doll and put her back on the shelf
wouldn't let her go to school to better herself
she had a baby by your ass and you ain't givin' no help
uh-huh, big time hustler, snake mother-fucker
one's born every day and every day she was your sucker
How could you beat the mother of your kids?
How could you tell her that you love her and
don't give a fuck if she lives
she told me she would leave you, I admit it she did
but came back, made up a lie about you missing the kids
sweet kisses, baby ain't even know she was your mistress
had to deal with fist fights and phone calls from your bitches
floss like you possed it, tellin' me to mind my business
that it was her life, and stay the fuck out of it
I tried and said just for him I'll keep a ready clip

(Repeat Twice)
Love is blind, and it will take over your mind
What you think is love, is truly not
You need to elavate and find


I don't even know you and I want you dead
don't know the facts but I saw the blood pour from her head
see I laid down beside her in the hospital bed
and about two hours later, doctor said she was dead
had the nerve to show up at her mother's house the next day
to come and pay your respects and help the family pray
even knelt down on one knee and let a tear drop
and before you had a chance to get up you heard my gun cock
prayin' to me now, I ain't god but I'll pretend
I ain't start your life nigga but I'mma bring it to an end
and I did, clear shot and no regrets, never
cops come in and lock me up under the jail
nigga whatever my bitch, fuck that my sister
you could never figure out even if I let you live
what our love was all about
I considered her my blood and it ain't come no thicker

(Repeat until music stop, let it fade away)
Love is blind, and it will take over your mind
What you think is love, is truly not
You need to elavate and find

25. október 2008 klukkan 15:06
Christel
2 athugasemdir
25október

Mánađar útrás

Þessi mánuður er búinn að vera frekar erfiður á ákveðinn hátt.. Ekki samt líkamlega heldur andlega. Núna á morgun er mánuður frá því að Gríma dó og ég er enn þá að venjast því að hún er ekki. Þegar ég kem heim koma bara tveir litlir englar á móti mér en ekki þrír. Ég hef alltaf kallað strákana litlu skæruliðana mína. Þegar þeir voru hvolpar var svo mikið um að vera hjá þeim. Litli íslenski var og er enn þá svoo pláss frekur og hann hefur nokkrum sinnum náð að sparka mér út úr rúminu á nóttinni. Hann spitnir sér í vegginn og svo jamm er meira pláss fyrr hann. Litli kokteillinn minn hann Cesar hefur alltaf haft sína skoðun á hlutunum. Ef hann stelst upp í sófa og maður dirfist til að koma við hann þá fer hann í massíva fýlu og yrðir ekki á mann allt kvöldið. Þeir eru yndislegir.
Ég er núna á þeim tímapunkti í lífinu þar sem ég veit ekki hvað ég vil. Ég bara er með í öllu og hef eiginlega enga skoðun á neinu sem er frekar skrítið fyrir mig því ég hef alltaf verið sú sem hef skoðun á öllu saman. Ef mér mislíkar eitthvað þá sit ég ekki bara og þeigi. Hvað get ég sagt, ég hef það frá mömmu. Frá því ég var lítil þá hef ég alltaf fengið að heyra það hvað ég væri lík henni af því ég læt ekki neinn vaða yfir mig. Ég er búin að eiga ekkert smá erfitt með að halda aftur af mér þennan mánuð. Í vinnunni var ég að vinna sem strák/manni sem er án efa mesta kelling sem ég veit um. Hann vældi út af öllu og þóttist vera kóngur í ríki sínu. Fyrst líkaði mér vel við hann og það var allt í lagi þangað til hann fór að bak tala pabba minn og vera leiðinlegur við alla sem töluðu ekki þessa brengluðu íslensku. Ég var að verða nett geggjuð á honum. Vælandi útaf öllu saman. Æhh æhh hann var með ónýt hné.. Well join the freaking club. Meiri hlutinn af fólkinu sem var að vinna þarna átti í erfileika með eitthvað, bak, hné, hendur allt saman. Ég er þreytt á fólki sem vorkennir sér allt of fucking mikið. Jú það er auðvitað í lagi að láta vita að maður sé að sálast í bakinu eða fleira en að væla allan fkn daginn er tooo much. Lét mig sækja þessa anskotans verkfæra tösku sína sem var hátt í 30 kg eða eitthvað og sagði alltaf " Ertu til í að auka leti mína og ná í .... " síðan kom eitthvað á eftir því eins og nestið mitt út í bíl eða töskuna eða þetta og þetta og hitt ... aaaaa ég gæti snappað bara þetta pirraði mig svo hrikalega. Bara svona lítið smá atriði.  Oft held ég að ég sé ekki í lagi, þótt að flest allir sem ég þekki halda því fram að ég sé það ekki þá líður mér eins og ég sé verri en ekki í lagi. Það er kannski lítil fluga að bögga mig, fljúgandi á mig þegar ég er að horfa á sjónvarpið eða að lesa. Ég get ekki drepið hana því þá fæ ég samviskubit.
       Sorry með þessa því líku færslu hérna en enginn er að byðja ykkur um að lesa þetta allt. En ef svo er þá bara enjoy því það er meira eftir. Þegar ég er búin að halda kjafti í heilan mánuð þá verður sprenging. Það er enginn í kringum mig sem hefur þolinmæði í það að hlusta á allt sem ég hef að segja þannig að ég ætla bara að koma því öllu út hérna og mér er sama hver les það og hver ekki.
Ég er í þannig stöðu að mig langar að segja soldið við einn aðila í lífi mínu en ég veit ekki hvort það sé rétt að gera það. Ég veit ekki hvernig viðkomandi bregst við og hvort það sé yfir höfuð rétti tíminn til þess. Æhh bögg ég hata svona hluti.. Kannski ætti ég bara að láta það eiga sig.. það er öruggast.
En hvað um það nýjar fréttir Harpa og Siggi eru trúlofuð og það er svo sætt að sjá þau sama og sjá Sigga með hring er svo skrítið hehe.
Núna í þessari viku er ég búin að vera í lækna stússi og veseni. Fór til heimilislæknisins míns núna í endan á seinustu viku útaf hnút sem sást í munnvatns-kirtli og hann sendi mig síðan upp í Domus Medica í ómskoðun og plús var skoðað nýru, lifrum, gallblöðru og brisi. Það kom ekkert sérstakt út úr því og síðan eftir það fór ég til hjarta læknis útaf eyranu á mér því það vissi engin læknir hvað var að því og hann sendi mig til Háls, nef og eyrna læknis sem ég fór til fyrir 2 árum útaf sama vandamáli. Læknirinn þá sagði að þetta væri af því að ég væri með feitan háls og ég vissi ekki hvert ég ætlaði þá, mig langaði að tak'ann og lemjann í klessu. Hann skoðaði mig ekki einu sinni. En í dag fór ég til annars læknis sem er í kringlunni á 3 hæð og hann sá eiginlega strax hvað var að. Hann tróð einhverju dæmi inn í eyrun á mér og hljóðhimnan sogast inn á við á báðum eyrum og það er komin einhver hola útaf því sem ég fatta ekki hvernig getur skeð enn well ég er ekki læknir. Hann skoðaði líka nefið mitt litla og hann sagði það vera ofnæmisnef og gaf með eitthvað nefsprey og vá ég gat andað með nefinu hehe og ég vissi ekki einu sinni að ég gæti það ekki. Fannst ég alveg geta það fyrir og síðan þegar ég fór út þá fékk ég brain freeze. Ég var svo Happy í dag og það var allt æðislegt. Meira að segja Stebbi varð hræddur við mig, spurði mig hvort ég væri á einhverju hehe.
        Síðan eftir þetta fórum við mæðgurnar fórum upp i Heiðmörk með hundana og við vorum þar í einhvern klukkutíma og síðan þegar við vorum að fara þá festi mamma okkur og ég fór út og reyndi að sparka snjónum af dekkjunum og síðan náði hún að láta bíllinn renna smá veigis aftur á bak og síðan sagði ég henni að ýta rólega á bensín gjöfina en nei hun gaf í og spólaði öllu undan bílnum og festi okkur enn þá meira.. þetta gekk svona endalaust þangað til ég tók við og náði að losa okkur og kom okkur af stað. síðan mættum við bíl sem tók allan veigin og ætlaðist til þess að ég myndi færi mig.. ég hélt nu ekki og hélt áfram og næstum því útaf og inn í trén og vá mamma fékk flog.. ég hló svo mikið að ég gat ekki andað. Þessi dagur var alger snilld..

En ég held að ég sé búin ég nenni þessu ekki lengur en jamm skemmtið ykkur vel og reynið að þrauka Kreppuna

25. október 2008 klukkan 02:01
Christel
Engin athugasemd
18október

Hvađ á ég ađ gera ??

Núna undafarna daga er ég búin að vera frekar ráðvilt eitthvað. Hef áhyggjur og er búin að vera frekar kvíðin. Kvöldið í kvöld var geðveikt skemmtilegt og við fórum öll í keiluhöllina og þannig og ég átti rosalega erfitt með að vera á staðnum eitthvað. Var í allt öðrum heimi og gat varla brosað. Ég veit ekkert hvað ég á að gera í þessu máli, fólk heldur að ég sé dottin niður í þvílíkt þunglindi og ég veit ekkert hvað ég get sagt við það þegar ég veit það ekki einu sinni sjálf. En þetta er komið nóg í bili, ætla bara að skella mér upp í rúm og njóta þess að sofa..

18. október 2008 klukkan 03:06
Christel
Engin athugasemd
12október

Sorglegt



Þann 26 september þá dó elsku Gríma okkar. Hún var búin að ganga í gegnum mikil veikindi á stuttum tíma og var búin að fara í nokkrar aðgerðir. Snemma á þessu ári greindist hún með krabbamein í spenunum og fór í aðgerð til að fjarlægja það, í leiðinni var hún tekin úr sambandi útaf hættu í móðurlífi og það var erfiður tími fyrir hana. Skurðirnir vildu ekki gróa og voru alltaf að opnast. Það tók rosalegan tíma fyrir það að jafna sig. Þegar það var komið þá fékk hún sýkingu í þvagrásina og við fórum með hana til dýralæknis í Víðidalnum og þau skoðuðu hana og það sem kom mér á óvart var hvað þau spurðu okkur mikið. Hvernig aðgerðir hún fór og og hvenar og hvort það hefði verið tekið úr henni móðulífið. Ég gapti og var mjög hissa því hún fór í allar aðgerðirnar hjá þeim og þau eiga auðvitað að vita meira um þetta en við. Þær létu hana í sónar og þá áttuðu þær sig á því að það var búið að taka hana úr sambandi. Núna í byrjun september þá fórum við með hana aftur því það var farið að blæða úr olboganum á henni og læknirinn þar sagði að þetta væri bara legu sár og við ættum bara að bera á hana krem og búa um sárið. Við gerðum það og ekkert gekk, það hætti ekki að blæða. Mamma gafst upp og fór með hana á Dýraspítalann hérna í keflavík og ég verð að segja að þau eru yndisleg þar. Þau sáu strax að þetta var ekki bara legu sár. Þau tóku úr henni blóð og þá kom í ljós að þetta var eitthvað sem tengdist lifrinni. Hún var ekki með nein storknunar efni í líkamanum og þau dældu í hana K-vítamíni sem hjálpar blóðinu að storkna. Það gekk ekki.
Hún var 5 ára gömul með lifra bilun. Við fengum 2 sólahringa að kveðja hana.

Fyrir svona ungan hund að fá lifra bilun á ekki að vera hægt. Læknirinn sagði að Hún væri með stórt og sterkt hjarta og það var það sem hélt henni á lífi allan þennan tíma. Um áramótinn byrjarði hún að fitna og allir sögðu við mömmu að hún ætti að hreyfa hana meira og gefa henni minna. Mamma gerði það og hun fitnaði bara meira. Læknirinn í Viðidal sagði við mömmu að hun ætti að hreyfa hana meira því hun væri of feit. Hún sagði það við mömmu rétt áður en hun dó.  Ástæðan fyrir því að hún "fitnaði" svona mikið var útaf vökva sem var inn í henni og hún gat ekki losað sig við hann.    Það sem gerði mig mest reiða var kæruleysið í lækninum þarna í Viðidal og það eina sem ég get sagt er "hvernig getur hún kallað sig lækni". Við þurftum að horfa upp á elsku hundinn okkar blæða út og við gátum ekkert gert. Líffærin voru búin að gefa sig og þeim blæddu út inn í henni og ef það kom lítið sár á hana þá blæddi endalaust og það stoppaði ekkert.

Þetta var án efa það erfiðasta sem ég hef þurft að upplifa

Ekki treysta öllum fyrir dýrunum ykkar og ég bið alla hunda eigendur að sprauta hundana sína fyrir lifra skjúkdómum og fleiru. Í júni kom nýtt lyf á markaðinn fyrir hunda sem ver þá fyrir lifrasjúkdómum.   Ekki spara pening þegar það tengist dýrunum ykkar. Það er dýrara að ganga í gegnum dýralækna kostnað heldur en að borga þessa sprautu. Enginn hundur er alveg öruggur án hennar.

                      
12. október 2008 klukkan 11:20
Christel
Engin athugasemd
07september

Ljósanótt
Í gær fór ég með Thelmu og Sigga og fólki niðrí bæ á ljósanóttina frægu. Það var ekkert smá gaman. Thelma og allir fóru í bollana nema ég og Valdi og ég auðvitað stóð fyrir framan hátalarann og var heyrnalaus haha. Heyrði allt geggjað látt og nánast öskraði allt sem ég sagði hehe. En ég held að ég hafi ekki skemmt mér svona vel lengi allaveganna ekki í tívolí. Það var skemmtileg tónlist og þeir höfðu flass ljósin á og reyk. Um leið og ljósin fóru af stað og reykurinn þá varð Thelmu óglatt og ældi greyið. Síðan var það bara búið. Við röltum þarna eitthvað um og ég var búin að drekka 3 bjóra og það var alveg nóg fyrir mig miða við að ég er ekkert búin að drekka neitt geðveikt lengi. ALGER HÆNA !!  Þegar við komum heim þá hló ég svo mikið að mamma var að verða geðveik á mér. Mér fannst allt fyndið og það var náttlega fyndnara þá eða það fannst mér.   

En hvað um það þá fann ég lag á netinu sem heitir Secret og vá það er ekkert smá gott að mínu mati.. ég er gjörsamlega búin að nauðga því hehe


Endilega segið ykkar álit
07. september 2008 klukkan 13:22
Christel
Engin athugasemd
20ágúst

..

Amy Mcdonald.. Mr Rock & Roll




20. ágúst 2008 klukkan 16:32
Christel
Engin athugasemd
20ágúst

I'm your .. myndband og texti


Þetta er uppáhalds lagið mitt í augnarblikinu.. Ég gæti hlustað á það endalaust.
Það er svo chillað eitthvað hehe rólegt og þægilegt .. enjoy

Ég læt textan hérna líka..

"I'm Yours"

Well you done done me and you bet I felt it
I tried to be chill but you're so hot that I melted
I fell right through the cracks
and now I'm trying to get back
Before the cool done run out
I'll be giving it my bestest
Nothing's going to stop me but divine intervention
I reckon its again my turn to win some or learn some

I won't hesitate no more, no more
It cannot wait, I'm yours

Well open up your mind and see like me
Open up your plans and damn you're free
Look into your heart and you'll find love love love
Listen to the music of the moment people dance and sing,
we're just one big family.
It's your God-forsaken right to be loved love loved love love

So I won't hesitate no more, no more
It cannot wait I'm sure
There's no need to complicate
Our time is short
This is our fate, I'm yours

I've been spending way too long checking my tongue in the mirror
And bending over backwards just to try to see it clearer
But my breath fogged up the glass
And so I drew a new face and I laughed
I guess what I'm saying is there ain't no better reason
To rid yourself of vanity and just go with the seasons
It's what we aim to do
Our name is our virtue

I won't hesitate no more, no more
It cannot wait I'm sure
There's no need to complicate
Our time is short
This is our fate, I'm yours

Well no no, well open up your mind and see like me
Open up your plans and damn you're free
Look into your heart and you'll find love love love love
Listen to the music of the moment come and dance with me
ah, la one big family ([2nd time:] ah, la happy family)
It's your God-forsaken right to be loved love love love

I won't hesitate no more
Oh no more no more no more
It's your God-forsaken right to be loved, I'm sure
Theres no need to complicate
Our time is short
This is our fate, I'm yours

No I won't hesitate no more, no more
This cannot wait I'm sure
There's no need to complicate
Our time is short
This is our fate, I'm yours, I'm yours


20. ágúst 2008 klukkan 01:10
Christel
Engin athugasemd
20ágúst

1* Myndbandiđ og veikindi.. ekkert smá mikiđ stuđ

Þetta er búinn að vera ekkert smá þreyttur dagur. Ég þurfti að vakna klukan 4 í morgun útaf því ég þurfti að keyra mömmu inn í Reykjavík í "vinnuna". Við lögðum af stað héðan um svona 6 leitið og við vorum komnar rétt fyrir 7. Síðan fór ég út á álftarnes og vakti abba upp fyrir vinnu. glápti eitthvað á sjónvarpið og lagðist upp í rúm. Fyrir svona 2 vikum þá fékk ég geðveikan hósta og ég hélt ég væri bara komin með flensuna en þegar ég var hætt að geta sofið þá fór ég til læknis. Og viti menn ég var kominn með lungnabólgu. Á laugardaginn og sunnudaginn var ég með 40 stiga hita og svefnlaus í þokkabót. Þessi helgi er búin að vera hreint hell. Ég er rétt svo að jafna mig núna og aðeins búin að geta sofið. Í morgun gat ég sofið í svona 1 og hálfan tíma og þá vaknaði ég upp við hóstakast. Ef ég næ ekki að sofa í nótt þá get ég ekki lofað neinum með geðheilsuna á morgun.
Núna á fimmtugainn er ég að fara í lungnamyndatöku og vonandi þá er þetta allt búið.
En já hérna ætla ég að láta inn fysta myndbandið sem ég hef látið inn á þessa síðu frá upphafi..









En já þetta er geðveikt lag.. ég veit að það eru ekki margir sem fýla svona tónlist en endilega hlustiði. Mér finnst þetta lag snilld bara útaf Pavarotti syngur með þeim..
20. ágúst 2008 klukkan 01:03
Christel
Engin athugasemd
17ágúst

...



Getur þú ef einhver spyr þig sagt viðkomandi hver þú ert? Ég get ekki sagt hver ég er. Ég er búin að reyna að finna það út, hver í anskotanum er ég. Hvað gerir mann að þeim sem maður er. Áhugamál, fjölskildan, vinirnir, hvað er það sem gerir mig að þeirri stelpu sem ég er í dag.
Áhugamálin mínu eru ekki mörg en það þýðir að ég get stundað þau eins og ég vil. Ég hef yfirleitt tíma til að gera það sem mér finnst skemmtilegt.

-Mér finnst æðislegt að vera með Hörpu og þeim og gera ekki neitt, bara slaka á og spila Mario Party. Það er snilldar leikur.
-Ég elska að vera innan um dýr og hesta sérstaklega og þegar ég er upp í hesthúsi þá er eins og ekkert skipti máli. Engin vandamál, ekkert stress, ég get sloppið frá veruleikanum og verið í friði.

- Tónlist er mjög stór partur af lífi mínu. Án hennar veit ég ekki hvar ég væri í dag. Ég losna við ekkert smá mikla útrás að hlusta á tónlist. Ég get hlustað á nánast allt saman en það er sumt sem ég hef enga þolinmæði eða eyru í að hlusta á eins og óperur. Svona öskrandi kellingar. Ég bara fatta ekki hvað fólk sér við þetta.  Il Divo eru hins vegar geggjað góðir og Josh Groban líka. Maður skilur hvað þeir segja og það er ekki bara eitthvað Laaaaaa la la la lala.

.. þetta eru víst aðal áhugamálin min. Ef ég ætti að segja frá mér sem persónu þá er ég frekar skapstór en það skeður ekki oft. Bara þegar mælirinn er fullur. Ég hef milljón böggandi kæki. T.d. Hrista löppina þegar ég horfi á sjónvarpið eða þegar ég er að fara að sofa. Láta braka í mér(hálsinum, bakinu, fingrunum og tánum) Fólk hata þennan kæk meira en allt. Ég er án efa mesti fiktari sem ég veit um. Ég verð að snerta allt sem ég á helst ekki að snerta. Ég er góð í að laga hluti sem eru bilaðir því þegar ég var yngri þá var ég dugleg að láta hluti bila og ekki vildi ég fá mömmu gargandi á mig þannig að ég reddaði því bara og lagaði það :D

Ég held að þegar maður fæðist þá mótast lífið í kringum mann. Ef maður fæðist inn í fjölskildu sem rífst mikið þá auðvitað lærir maður að rífa kjaft.  Ég er skít hrædd við það að binda mig í sambandi því ég vil ekki enda eins og foreldrar mínir. Ég vil ekki gifta mig til þess að skilja. Frá því að ég man eftir mér þá var alltaf eitthvað á milli þeirra. Rifrildi og leiðindi. Hver er tilgangurinn með því að vera með einhverjum bara útaf því. Auðvitað er erfitt að fyrir börnin að ganga í gegnum skilnað foreldra sinna en ég hugsaði " það er betra að þau séu hamingjusöm í sitthvoru lagi en óhamingjusöm saman".
En já ég nenni ekki að fara út í svona sálma.

Ég er orðin drullu þreytt hérna og ég að pæla í að fara að sofa eða þar að segja reyna það. Seinustu 2 nætur hef ég ekki sofið neitt útaf hósta og kítli í hálsinum.
Ég þoli ekki bögg flensur og þessa helv... Lungnabólgu sem ég þurfti endilega að næla mér í.. júhú gaman fyrir mig

Hugs

17. ágúst 2008 klukkan 03:39
Christel
1 athugasemd
11ágúst

....

jæja það er kominn soldill tími síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna. Ég er búin að vera net laus í ekkert smá langan tíma. Fyrst var það ekkert smá erfitt en nuna er það allt í læ. Ég er heima í Grænás og er að stelast í tölvuna hjá syss hehe hun er samt hérna hliðin á mér. Það er ekki mikið búið að vera að ske nema jú Thelma er sweet seventeen!! you go girl ;D Hún átti afmæli núna 4 águst og það var smá veisla hérna í heima og flest allir vinirnir voru hérna staddir :D 
Síðan er Gríma að ná sér eftir aðgerðina en það virðist samt vera enn þá eitthvað að og á morgun sem sagt á mánudaginn þá förum við með hana upp á dýraspítala í skoðun.
Thelma er búin að fá sér sætan kettling sem heitir Engill og hann er alveg snjó hvítur og ekkert smá fallegur, Hann er án efa gáfaðasti köttur sem ég veit um hehe
En já best að fara að skella sér í bað fyrir svefninn. Bæ á meðan :D
11. ágúst 2008 klukkan 01:25
Christel
Engin athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Christel
  • Netfang: christel_179@hotmail.com
  • Stađur: Reykjanesbćr / Reykjavík
  • Atvinna: Dominos
  • Um mig: Ég heiti Christel Liff og ég er 18 ára. Áhugamál- Hestar, ferđast, Tónlist, chilla međ vinum mínum og ég gjörsamlega dái hundana mína útaf lífiu og ég elska vini mína meir en allt.